GASKET MAKER RED (W10807)

RED GASKET MAKER

Wynn´s Red Gasket Maker er mjúkt háhitaþolið, vatnsþétt fyllinar- og bindiefni. Það er að grunni polysiloxane gerð vara í þrýstiflösku til að gera þéttingar og pakkningar á fljótlegan og auðveldan hátt.

  • þolir olíur, sjálfskiptivökva, vatn, frostlög, feiti, reyk og heitar eiturgufur.
  • kemur í staðinn fyrir kork, pappír, tau og gúmmípakkningar.
  • Þolir allt að 260°C í stutta stund.
  • Skaðar ekki hvarfakúta og skynjara.
  • Ekki þörf að herða aftur á hlutum, eftir að efnið hefur tekið sig.
  • Efnið er tilbúið til notkunar.

    NOTKUN
    Hentugt til notkunar í staðinn fyrir pakkningar á vélarj-hlutum (ventlalok, sjálfskiptingum og
    sveifaráshúsum, vatnsdælum, vatnslásum), hita-og kælikerfi, loftkælingu, bodyhlutum,
    iðnaðarofnum, eldavélum, gluggaþéttingum og mörgu öðru.
    Ekki til notkunar í staðinn fyrir heddpakkningar, eða til notkunar þar sem efnið liggur stöðugt í bensíni.
    (EKKI nota efnið sem þéttingar í blöndungum).
    Notið ekki í samskeyti dýpri en 10mm.
    Forðist snertingu við leysiefni meðan verið er að leggja efnið.

    LEIÐBEININGAR
    Fjarlagið insiglið.
    Taktu hettuna af stútnum.
    Passaðu að flöturinn sé hreinn og laus við olæiu og fitu.
    Snúið efsta hluta túpunnar réttsælis þar til heyrist "click". Snúið áfram réttsælis þar til stoppar til
    að handfangið virki sem best. Snúið á "Max" fyrir ríkulega skömmtun og á "Min" fyrir litla skömtun.
    Leggið pakkningarefnið með því að ýta létt á handfangið.
    Leggið hlutina strax saman.
    Herðið þar til efnið byrjar að þrýstast út undan samskeytunum.
    Leyfið efninu að jafna sig í eina klst, herðið svo aukalega 1/4 til 1/2 snúning.
    Efnið er snertiþurrt eftir eina klst. og hefur fullþornað á 24 klst.
    Eftir notkun, þurrkið af stútnum og setjið lokið aftur á.
    Ef efnið hefur harðnað í stútnum, skrúfið stútinn af og fjarlægið harnað efnið.
    Ef ætlunin er að hægt sé að taka hlutina aftur í sundur án þess að skemma pakkningarefnið,
    setjið efnið á annan flötinn eins og venjulega, en setjið örþunna slykju af olíu á hinn flötinn áður en hluttirnir eru lagðir saman.

    VÖRUNÚMER
    W10807 - 200ml